Sæl og blessuð.
Rigningin mætti hætta núna, orðið gott í bili.
Barnabarnið kom farsællega í heiminn 1.júlí. Hún heitir Rúna og er gullfalleg. Við sáum hana á skipe í gær. Vorum reyndar búin að sjá myndir áður.Ég fer að laga til í Ömmuhúsi á morgun, og sauma nýjan kannt á teppið hennar mömmu. Það sédt reyndar í myndaseríunni á sýningunni. Svo lít ég á þjóðlagahátíðina í leiðinni.
Kveðjur, Didda.
Wednesday, 07 July 2010
Heil og sæl!
Síðan er flott. Vísaði nokkrum erlendum á slóðina meðan gosið stóð sem hæst - og fyrirspurnir streymdu til mín frá forvitnum garðyrkjusíðuskríbentum um víða veröld.
Gangi ykkur vel -
Kveðja,
Hafsteinn Hafl.
Friday, 02 July 2010
Sæl og blessuð,
Var að vafra og mátti til að setja nokkur orð í gestabókina. Loksins komin hér, hlý og hæglát rigning eftir margra (amk.2) mánaða þurrk.
Blessað barnabarnið í Ameríku á að koma í heiminn í dag.
Kveðjur, Didda Akureyri.
Thursday, 01 July 2010
Gestabók Tré og list er tækifæri fyrir þá sem hafa kynnst Tré og list að senda inn kveðju.
Thursday, 01 July 2010
Wood and art is an active workshop and gallery that is both preserving and adding to the history of craftsmansship and inventions on an ongoing basis.
Að sigra heiminn er eins og að spila á spil
með spekingslegum svip og taka í nefið.
(Og allt með glöðu geði
er gjarna sett að veði).
Og þótt þú tapir, það gerir ekkert til,
því það er nefnilega vitlaust gefið.
Steinn Steinarr