| Um Tré og list |
|
|
Tré og list var opnað 19. ágúst 2007. Hjónin Bergþóra og Ólafur endurbyggðu gamalt fjós í frístundum sínum og tók hugmyndavinna og smíði u.þ.b. 4 ár. Tré og List er staðsett að Forsæti í Flóahreppi. Beint þar undir er Þjórsárhraun sem rann fyrir um 8700 árum og er eitt mesta hraun sem runnið hefur á jörðinni frá því að ísöld lauk. Hraunið nær frá Veiðivötnum fram í sjó við Eyrarbakka og Stokkseyri. Þjórsá, lengsta á Íslands liðast hér um og 8 km. fyrir ofan er Urriðafoss, vatnsmesti foss landsins. Í austri er hið tignarlega og fræga elfjall Hekla, hluti af stórkoslegum fjallahring sem nær frá Vestmannaeyjum að Reykjanestá. Frá 1922 hefur sama ættin búið í Forsæti en þá hófst saga handverks og uppfinninga sem stendur enn. Hér í safninu er varðveitt verkstæði , vélar og uppfinningar Sigurjóns Kristjánssonar Forsæti f. 25 jan. 1908 d. 11.sept. 1990. Einnig er hér vefnaður og handverk konu hans Kristínar Ketilsdóttur f. 6. ág. 1914 d. 3.febr.1985. Safnið er helgað minningu þeirra hjóna . Sigga á Grund Sigríður Jóna Kristjánsdóttir er fædd 30.maí 1944. Listakonan Sigga á Grund er án efa einn fremsti listamaður þjóðarinnar á sviði tréskurðarlistar. Hún hefur unnið að útskurði eftir pöntunum í tré, bein og horn, allt frá 12 ára aldri. Sigga nam útskurð í City & guilds of London art school. Má nú finna muni hennar vítt um heiminn og hefur hún ekki náð að anna eftirspurn í seinni tíð. Ólafur Sigurjónsson Ólafur Sigurjónsson er fæddur 19.janúar 1945. Ólafur er húsasmíðameistari og söngstjóri að mennt. Hann er hagleiksmaður og margt til lista lagt eins og sjá má hér í listasmiðjunni. 2.ágúst 2009 var Ólafur gestur í þætti Gísla Einarssonar "Út og suður". Smelltu hér til að horfa á þáttinn. Sigga og Ólafur hafa lengi átt gott samstarf í list sinni og eru verk þeirra aðalhluti Tré og list Á ferðamannatíma eru að auki uppi farandsýningar annara listamanna sem auglýstar eru sérstaklega hverju sinni. Myndir frá uppbyggingu Tré og list Merki Tré og list - aðgengilegt hér til miðlunar fyrir auglýsendur og aðra
|