Skip to content

Tré og list

Grímsvötn 2011 - I Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 24. maí 2011 07:04

Enn er farið að gjósa hér á landi. Nú eru það Grímsvötn. Ólafur flaug að gosinu nær samstundis og það kom upp og var strax ljóst að þetta voru miklar hamfarir. Þótt mikið hafi gengið á í Eyjafjallajökli var það barnaleikur á við þetta.


Mökkurinn var hvítur í fyrstu en dökknaði ört þann tíma sem flogið var inn á jökul. Þá fóru að koma ákafar eldingar sem færðu sig utar og utar ofan úr sveppalaga mekkinum efst og beint niður í jökulinn eftir því sem meiri aska barst þangað upp. Ekki beint árennilegt að fara of nærri. Vonandi er að hörmungarnar á öskufallssvæðunum taki fljótt enda .

Grimsvotn_I Grimsvotn_I Grimsvotn_I
Grimsvotn_I   

 
Icelandic (IS)English (United Kingdom)

Bókmerkja

Póstlisti Tré og list

Netfangið þitt:

Um Tré og list

Tré og list er lifandi listasmiðja sem varðveitir sögu hagleiks og uppfinninga, kynnir tréskurðarlist og sérstakt handverk. Tré og list er staðsett að Forsæti í Flóa, á bökkum Þjórsár.

Opið: Núna er vetraropnun hjá Tré og list. Þá er opið eftir pöntun.

Sími: 486 3335

GSM: 868 9045/894 4835

Aðgangseyrir kr.750

Hafa samband

Tilvitnun dagsins

Undrunin er móðir hugsunarinnar.
Sigurbjörn Einarsson
    heimsóknir.