Ólafur er með flugvél að Forsæti III og hefur flogið oft yfir gosstöðvarnar að undanförnu. Hér eru nokkrar myndir sem Ólafur hefur tekið, flestar úr lofti, en nokkrar af jörðu niðri. Allar þessar myndir eru teknar á Nikon D700 myndavél með Carl Zeiss 35mm linsu.
Tré og list er lifandi listasmiðja sem varðveitir sögu hagleiks og uppfinninga, kynnir tréskurðarlist og sérstakt handverk. Tré og list er staðsett að Forsæti í Flóa, á bökkum Þjórsár.
Opið: Núna er vetraropnun hjá Tré og list. Þá er opið eftir pöntun.