|
Eyjafjallajökull VIII |
|
|
Laugardagur, 08. maí 2010 00:00 |
|
Myndir frá síðustu 2 dögum goss í Eyjafjallajökli. Takið eftir regnbogakúlunni á fyrstu myndinni sem birtist þegar mökkurinn sogaði vatnsgufu upp með sér og sólin náði svo að skína í gegn. Gríðar mikil aska í gosinu. Síðustu nótt voru þungar drunur í Flóa og eldstrókurinn lýsti upp gosmökkinn.
|
|
|
Eyjafjallajökull IX |
|
|
Laugardagur, 08. maí 2010 00:00 |
|
Þessar myndir voru teknar í gærkvöldi um kl.22
|
|
Eyjafjallajökull VII |
|
|
Þriðjudagur, 04. maí 2010 00:00 |
|
Ólafur flaug yfir gosstöðvarnar um kl.16. Hann telur að hraunið sé komið þar sem hvíti strókurinn kemur upp af Gígjökli. Gríðarlegar sprengingar og grjótflug upp úr gígnum. Talsvert öskufok skáhalt niður af jöklinum sunnanverðum. Sérkennilegur vindstrengur í um 10þ. fetum vatt mökkinn í slæður en í 7þ. fetum var nánast logn.
|
|
Eyjafjallajökull X |
|
|
Þriðjudagur, 04. maí 2010 00:00 |
|
Í morgun gafst gott tækifæri að sjá ummerki eftir gosið íEyjafjallajökli. Á fyrstu mynd sést hve askan er þykk sunnan í jöklinum þar sem stór fleki hefur skriðið niður. Svo er vatnið í gígbotninum umkringt mikilli litadýrð.
Á Fimmvörðuhálsi er komið nýtt landslag þar sem göngustígurinn er kominn í ljós aftur yfir nýju gígana. Tugir ferðamanna nutu hinnar stórbrotnu fegurðar í silfurskærri morgunbirtu.
|
|
Eyjafjallajökull VI |
|
|
Sunnudagur, 02. maí 2010 00:00 |
|
Flogið var frá Forsæti yfir gosstöðvarnar í morgun í einstakri veðurblíðu . Stafa logn og mjög sérstök birta. Eldur og ís takast nú á með ógnar krafti og bólstrarnir frá þeim átökum stíga upp í heiðloftið svartir og skjanna hvítir. Tilkomumikil sjón. Áhyggjur og samúð með fólki undir Eyjafjöllum heldur áfram ef þessu fer ekki að linna.
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 3 |