Skip to content

Tré og list

Kvæði um Tré og list Prentvæn útgáfa
Mánudagur, 31. ágúst 2009 12:30

DSC_0254

Sigmundur Benediktsson heimsótti Tré og list fyrr í sumar. Sigmundur er vel hagmæltur og tileinkar Tré og list eftirfarandi kvæði.

TRÉ OG LIST

Forsætis gestum fagna af hjarta
fáguð og vinsæl hjón,
sýna af alúð safnið bjarta
og sinna margri bón.
Öll er hér listin auðnu bundin
með ástúð í verka svip.
Hugsjónagleði og fegurð fundin
faðmast í hverjum grip.

Nærgætnir fingur vinna og velja
viði í stafahring.
Iðjustundirnar ekki telja,
sem uppskera listaþing.
Renna, fága og verja viðinn
í varanlegt geymslusnið.
Áhöld gömul og andi liðinn
einnig fá vernd og grið.

Leikur skurðjárn í hagleiks hendi,
heildarmynd augað sér.
Munstur sem innri auðlegð sendi
óðara birtast fer.
Lifandi sköpun sem vorsins vindar
verktökin lífgar sterk.
Hnífurinn tifar, mótar og myndar
magnþrungin listaverk.

Gefandi tónlist hér ólgar í æðum
og örvar glaðbeittan hug.
Leikglaðir fingur lagsins gæðum
lyfta á hærra flug.
Brosandi tónar blæjast um salinn
og blíðvefja lífsins þrá.
Draumur náttúru *) auðnusjóð alinn
öllu vill þroska ljá.

Margt er í safnið meira spunnið,
en mun aldrei skráð á blað.
Sköpunargleðin við afrek unnið
er ofin í þennan stað.
Heillandi gripi í hugskotið festi
og hlusta á þeirra mál.
Forsæti gaf mér fegurð í nesti
og fagnaðartón í sál.


Sigm. Ben. (ág.´09). *)
Lagið sem leikið var heitir Draumur náttúrunnar.

Tré og list þakkar Sigmundi kærlega fyrir vel ort kvæði. Það er uppörvandi og hvetjandi að fá svona umsögn!

 
Icelandic (IS)English (United Kingdom)

Bókmerkja

Póstlisti Tré og list

Netfangið þitt:

Um Tré og list

Tré og list er lifandi listasmiðja sem varðveitir sögu hagleiks og uppfinninga, kynnir tréskurðarlist og sérstakt handverk. Tré og list er staðsett að Forsæti í Flóa, á bökkum Þjórsár.

Opið: Núna er voropnun. Opið föstudaga, laugardaga og sunnudaga frá kl.13-17 og einnig eftir samkomulagi utan þess.

Sími: 486 3335

GSM: 868 9045/894 4835

Aðgangseyrir kr.750

Hafa samband

Tilvitnun dagsins

Brennivín ei bætir mann
böli og þjáning veldur.
Umgangast það enginn kann,
ekki þú víst heldur.

Ólafur Sigurjónsson


    heimsóknir.