Skip to content

Tré og list

Sigurlín Grímsdóttir opnar sýningu Prentvæn útgáfa
Miðvikudagur, 25. maí 2011 23:08

Opnuð verður myndlistasýning Sigulínar Grímsdóttur, föstudaginn 27. maí 2011 kl 14:00. Við opnunina munu María Weiss spila á fiðlu og Ólafur Sigurjónsson leika undir á píanó.

Sigurlín hefur stundað nám á hlutateikningu og fjarvídd við Lýðháskólann í Skálholti hjá Ásdísi Sigþórsdóttur. Á námskeiðum M.F.Á. hefur Sigurlín lært vatnslitamálun og olíumálun hjá Svövu Sigríði Gestsdóttur og Guðrúnu Svövu Svavarsdóttur. Árið 1997 nam hún uppstillingar og meðferð blýs og lita hjá Katrínu Briem. Sigurlín hefur einnig verið tvær annir í F.Su. í módel og hlutateikningu hjá Elísabetu Harðardóttur. Auk þess nam hún módelteikningar í Myndlistaskóla Reykjavíkur hjá Valgerði Bergsdóttur og vatnslitamálun hjá Gunnlaugi St. Gíslasyni.

Sigurlín hefur tekið þátt í árlegum samsýningum myndlistafélags Árnessýslu og haldið fjölda einkasýninga þar á meðal í Tré og list. Hún sækir myndefni sitt í nánasta umhverfi og vinnur með vatnslitum og olíu.

Myndlistasýning Sigurlínar mun standa fram til 12. júlí 2011.

2011_Sigurlin 2011_Sigurlin 2011_Sigurlin
2011_Sigurlin 2011_Sigurlin  

Í maí 2008 var Sigurlín fyrsti listamaðurinn sem opnaði sýningu í Tré og list.

 
Icelandic (IS)English (United Kingdom)

Bókmerkja

Póstlisti Tré og list

Netfangið þitt:

Um Tré og list

Tré og list er lifandi listasmiðja sem varðveitir sögu hagleiks og uppfinninga, kynnir tréskurðarlist og sérstakt handverk. Tré og list er staðsett að Forsæti í Flóa, á bökkum Þjórsár.

Opið: Núna er voropnun. Opið föstudaga, laugardaga og sunnudaga frá kl.13-17 og einnig eftir samkomulagi utan þess.

Sími: 486 3335

GSM: 868 9045/894 4835

Aðgangseyrir kr.750

Hafa samband

Tilvitnun dagsins

Brennivín ei bætir mann
böli og þjáning veldur.
Umgangast það enginn kann,
ekki þú víst heldur.

Ólafur Sigurjónsson


    heimsóknir.