Skip to content

Tré og list

Sýning á útskurði Unnar Guðmundsdóttur frá Túni Prentvæn útgáfa
Mánudagur, 18. júlí 2011 12:21

001002

Sýning á útskurði eftir Unni Guðmundsdóttur frá Túnií Flóa verður opnuð í Tré og list í Forsæti í Flóa þann 20. júlí nk., kl. 17.00. Við opnunina mun Harpa Dís Hákonardóttir leika á píanó.

Unnur Guðmundsdóttir er fædd 30. júlí 1921 í Túni í Flóa, dóttir hjónanna Ragnheiðar Jónsdóttur og Guðmundar Bjarnasonar, yngst 7 systkina. Hún verður því níræð í sumar. Móðir hennar lést þegar hún var á 10. ári. Eftir að báðar eldri systur hennar, Guðrún og Guðfinna voru fluttar að heiman, 1943, stóð hún fyrir heimili föður síns og bræðra sinna í Túni til 1946. Hún flutti síðan til Reykjavíkur þar sem hún vann á saumastofu lengst af meðan hún var einhleyp. Hún giftist 2. júní 1951 Herði Þorgeirssyni (1917-2006), húsasmíðameistara frá Hlemmiskeiði á Skeiðum. Á síðari árum starfsævinnar vann hún sem sjálfboðaliði hjá Rauða krossi Íslands við sölustörf.

Guðfinna, systir Unnar, síðar húsfreyja í Vorsabæ, sótti námskeið í útskurði hjá Ríkharði Jónssyni myndskera um 1930 og skar út ýmsa hluti, aska, hillur, lampa og myndaramma. Unnur lærði hjá henni að skera út og stundaði síðan útskurð í meira en 50 ár, a.m.k. frá 1950, gerði hillur, aska, vegglampa úr horni, borðlampa, bréfahnífa, platta, skartgripaskrín, öskjur og ýmsa smáhluti, til gjafa og sölu sem minjagripi. Höfðaletur er á mörgum gripum hennar. Hörður undirbjó smíðisgripina undir skurð, renndi aska o.s.frv. og studdi hana með ráðum og dáð í handverkinu.

Fjöldi útskorinna gripa liggur eftir hana. Allt handbragð hennar er mjög vandað og gripir hennar haglega gerðir. Heimilisiðnaðarfélag Íslands vakti athygli á því með því að birta mynd af ostabretti sem hún gerði, í blaði félagsins Hugur og hönd, 1. hefti 1966.

Þessi litla sýning sem sett er saman í tilefni af níræðisafmæli Unnar á að sýna brot af þeirri þjóðlegu hefð sem íslenskur útskurður er og hvernig hann hefur verið ávaxtaður á 20. öld sem framhald þeirrar alþýðulistar sem stunduð hefur verið af hagleiksfólki á Íslandi um aldir. Sýningin verður opin til loka ágústmánaðar.

Unnur dvelur nú á dvalarheimilinu Grund í Reykjavík.

 
Icelandic (IS)English (United Kingdom)

Bókmerkja

Póstlisti Tré og list

Netfangið þitt:

Um Tré og list

Tré og list er lifandi listasmiðja sem varðveitir sögu hagleiks og uppfinninga, kynnir tréskurðarlist og sérstakt handverk. Tré og list er staðsett að Forsæti í Flóa, á bökkum Þjórsár.

Opið: Núna er vetraropnun hjá Tré og list. Þá er opið eftir pöntun.

Sími: 486 3335

GSM: 868 9045/894 4835

Aðgangseyrir kr.750

Hafa samband

Tilvitnun dagsins

Undrunin er móðir hugsunarinnar.
Sigurbjörn Einarsson
    heimsóknir.