Kvöldið 28. apríl komu kvenfélagskonur af Seltjarnarnesi í Tré og list í boði félagskvenna úr fyrrum Villingaholtshreppi. Það var ánægjulegt að fá þennan góða hóp í heimsókn.
Tré og list er lifandi listasmiðja sem varðveitir sögu hagleiks og uppfinninga, kynnir tréskurðarlist og sérstakt handverk. Tré og list er staðsett að Forsæti í Flóa, á bökkum Þjórsár.
Opið: Núna er vetraropnun hjá Tré og list. Þá er opið eftir pöntun.